Tókíó Óli er eins árs fress. Hann er einstaklega ljúfur og skemmtilegur kisi og kom til okkar í byrjun ágúst 2019. Hann náði að heilla eina í kaffihúsateyminu svo mikið að hún gat ekki hugsað sér lífið án hans og hann flutti til hennar 10 dögum eftir að hann kom til okkar. Tókíó Óli is a 1 year old sweet and beautiful male. He came to the cafe at the beginning of August 2019. One of our cafe team fell in love with him at first sight and couldn't imagine life without him so he moved in with her 10 days later.
Kisi er einstaklega ljúfur 6 ára gamall fress. Hann kom á kaffihúsið um miðjan júlí 2019 og stoppaði ekki lengi þar sem hann hitti fullkomna fjölskyldu ekki löngu eftir að hann kom til okkar og flutti til þeirra í lok júlí. Kisi is a sweet 6 year old male. He came to the cafe mid July 2019 and didn't stay long as he met his perfect family soon after he came and moved to their home at the end of July.
Klukka er yndisleg 6 ára gömul læða. Hún er útikisa sem er vön börnum og er einstaklega ljúf og falleg. Hún kom á kaffihúsið í byrjun júlí 2019 og leitar að góðu heimili sem mun hugsa vel um hana. Klukka is a lovely 6 year old female. She is as sweet as she is cute and is used to going outside. She came to the cafe at the beginning of July and is still looking for a home that will love her and take good care of her.
Systurnar Stella (bröndótta) og Kattla (ljósa) eru 2ja ára uppeldissystur. Þær eru einstaklega skemmtilegar og samrýmdar systur. Þær komu til okkar um miðjan júní 2019 og fóru saman á heimili í byrjun október 2019. Sisters Stella (striped lady) and Kattla are 2 year old beauties who are as unique characters as they are adorable. They came to the cafe mid June 2019 and moved together to their forever home at the beginning of October 2019.
Keana er lítil og nett 2ja ára gömul læða sem elskar klapp og knús. Hún kom á kaffihúsið í byrjun júní og flutti frá okkur á nýja heimilið sitt um miðjan júlí 2019. Keana is a tiny but mighty 2 year old female who came to the cafe in the beginning of June 2019. She moved to her new family mid july 2019.
|